Grafísk hönnun

Nám í grafískri hönnun er þriggja ára nám, 180 einingar. Nemendur ljúka að jafnaði 30 einingum á önn. Að loknu námi og tilskildum prófum og verkefnum hlýtur nemandi B.A.gráðu.

Grafísk hönnun er hönnunarsvið sem byggir á ævafornum grunni ritlistar og prenthefðar sem hefur þróast á 20. öld í mjög fjölbreytt svið framsetningar á efni á frjóan og skipulegan hátt. Nám í grafískri hönnun er nám í framsetningu á upplýsingum á myndrænan hátt.

Náminu lýkur með lokaverkefni sem sýnt er á útskriftarsýningu og auk þess skrifa nemendur ritgerð til BA prófs undir leiðsögn leiðbeinanda.

Skipulag náms
Viðmið um bakkalársgráðu í grafískri hönnun

Prófessor: Guðmundur Oddur Magnússon
Fagstjóri
: Halldóra G. Ísleifsdóttir