Fatahönnun

Nám í fatahönnun er þriggja ára nám, 180 einingar. Nemendur ljúka að jafnaði 30 einingum á önn. Að loknu námi og tilskildum prófum og verkefnum hlýtur nemandi B.A.gráðu.

Lögð er áhersla á að nemandinn öðlist þekkingu á myndrænni framsetningu, kenningum, hugtökum, aðferðum og tækni fatahönnunar og jafnframt upphefja skilning og þekkingu á fatahönnun með vel skilgreindri og upplýstri hugmyndafræði.

Náminu lýkur með lokaverkefni sem sýnt er á tískusýningu og útskriftarsýningu. Auk þess skrifa nemendur ritgerð til B.A. prófs undir leiðsögn leiðbeinanda.

Skipulag náms
Viðmið um bakkalársgráðu í fatahönnun

Fagstjóri: Linda Björg Árnadóttir